Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum at JBT Marel, IS - Gardabaer

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum at JBT Marel in IS - Gardabaer. Full-time. Apply with swipeandhired.

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við samsetningu á fjölbreyttum vigtarbúnaði og rafbúnaði.

Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun.

Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.

Starfið felur í sér:

Hæfniskröfur:

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson, [email protected] .

Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.